Rafael Grossi, framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, hefur fordæmt „markvissa“ árás á Saporisjía-kjarnorkuverið, í Úkraínu sem er undir stjórn Rússa.
Hefur Grossi kallað því því að „þessu brjálæði linni“ þar sem stjórnvöld í Kænugarði og Moskvu skiptast á ásökunum um sprengjuárásir á verið.
Á sama tíma hafa Rússar sakað Úkraínumenn um að hafa tekið uppgjafahermenn af lífi, nokkuð sem Úkraínumenn þverneita.
„Fréttir frá eftirlitsmönnum okkar í gær og í morgun valda miklum áhyggjum,“ segir í yfirlýsingu frá Grossi.
„Sprengingar urðu nærri þessu stóra kjarnorkuveri sem er algjörlega óviðunandi. Hver sem er á bak við þessar árásir verður að láta af því strax.“