Yfirvöld í Kósovó og Serbíu hafa komist að samkomulagi um aðgerðir til að draga úr deilum er varðar serbneskar bílnúmeraplötur. Mikil spenna hefur ríkt á milli nágrannaríkjanna vegna málsins.
Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandssins, tístaði: „Það er komið samkomulag!“. Hann bætti við að bæði ríkin ætli að leggja sig fram í að ná fram sáttum.
Fjórtán ár eru síðan Kósovó fékk sjálfstæði frá Serbíu og búa um 50 þúsund Serbar í Norður-Kósovó sem enn nota serbnesk bílnúmer og önnur serbnesk gögn. Neita þeir að viðurkenna sjálfstæði ríkisins.
BBC greinir frá því að yfirvöld í Kósovó hótuðu að sekta ökumenn með serbnesk bílnúmer frá og með deginum í dag. Sektin átti að hljóða upp á 150 evrur, eða um 22 þúsund krónur.
Borell greindi frá því að yfirvöld í Serbíu myndu hætta að gefa út númeraplötur til ríkisborgara Kósovó og yfirvöld í Kósovó myndu hætta við að krefjast þess að ökutæki með serbnesk bílnúmer yrðu endurskráð.
We reached an agreement between #Kosovo and #Serbia today that will allow to avoid further escalation.
— Josep Borrell Fontelles (@JosepBorrellF) November 23, 2022
We will discuss next steps within the framework of our proposal for normalisation of relations between the two parties. pic.twitter.com/YQ7vVWPOgT