Viðbragðaðilar hafa fundið lík erlendrar konu í aurskriðunni sem féll á smábæinn Casamicciola Terme á ítölsku eyjunni Ischia snemma í morgun. Konan var ekki ítölsk en var gift íbúa Casamicciola.
Ítalski miðilinn Ansa greinir frá.
Nokkurra er enn leitað í skriðunni en um 200 manns hefur verið gert að yfirgefa svæðið.