Bandaríska körfuknattleikskonan Brittney Griner er nú laus úr rússnesku fangelsi eftir að fangaskipti fóru fram á milli Rússlands og Bandaríkjanna. Það var Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sem greindi frá nýfengnu frelsi Griner á Twitter.
„Hún er örugg. Hún er í flugvél. Hún er á leiðinni heim,“ tísti forsetinn.
Griner var handtekin á flugvellinum í Moskvu í febrúar á þessu ári eftir að rafrettuhylki með kannabisolíu fannst í farangri hennar. Handtakan átti sér stað aðeins nokkrum dögum áður en Rússar réðust inn í Úkraínu
Í ágúst dæmdi rússneskur dómstóll Griner í níu ára fangelsi. Var hún í dag sakfelld fyrir smygl og vörslu fíkniefna og jafnframt gert að greiða eina milljón rúbla í sekt, sem jafngildir rúmlega tveimur milljónum íslenskra króna.
Lögmaður Griner sagði fyrir rétti að magn efnisins sem hún kom með til landsins hefði verið rétt yfir leyfilegu hámarki, en hún var hins vegar fundin sek um smygl og vörslu verulegs magns af fíkniefnum. Sjálf sagðist Griner hafa gert heiðarleg mistök, hún hafi verið að flýta sér og verið undir miklu álagi.
Í nóvember var svo greint frá því að yfirvöld í Rússlandi ætluðu að flytja Griner á fanganýlendu. Þá greindi Karine Jean-Pierre, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, frá því að bandarísk yfirvöld hefðu gert Rússum „veglegt tilboð“ til að greiða úr máli Griner.