Umhverfisverndarsinnar límdu sjálfa sig við flugbrautina á flugvelli þýsku borgarinnar München í morgun. Einnig tókst þeim að ryðjast inn á flugbraut flugvallarins Berlin-Brandenburg, að sögn flugmálayfirvalda.
Í München voru fjórir aðgerðasinnar límdir við norðurhluta flugbrautarinnar í um 45 mínútur áður en þeir voru losaðir og handteknir, að sögn talsmanns flugvallarins.
Hann bætti við að lítilsháttar tafir hafi orðið á flugi en engu hafi verið aflýst.
Climate protesters disrupt air traffic at Munich airport by gluing themselves to one of the taxiways. https://t.co/J1CgqEVeSS pic.twitter.com/iewandFmlk
— Breaking Aviation News & Videos (@aviationbrk) December 8, 2022
Í Berlín sagði talsmaður að „þó nokkrir“ hefðu komist inn á flugbrautina en að atvikið hefði ekki haft truflun á flugi í för með sér.
Umhverfisverndarsamtökin The Last Generation, eða Síðasta kynslóðin, sögðust í yfirlýsingu hafa verið að mótmæla „aðild stórra ríkja að loftslagshamförunum“.
„Við getum ekki lengur setið hjá aðgerðalaus á meðan fáar ríkar manneskjur sökkva heiminum í hyldýpið fyrir hönd okkar allra og eyðileggja sameiginlegt lífsviðurværi okkar,“ sagði talsmaður samtakanna, Aimee van Baalen.
JUST IN: Climate protesters attempted to disrupt air traffic at the Munich airport by gluing themselves to one of the runways, police confirmed.
— DW News (@dwnews) December 8, 2022
More to follow on https://t.co/8g7t94bB9u pic.twitter.com/P3rjCMdPtn