Stjórnvöld í Moskvu hafa staðfest að fangaskipti hafi farið fram á milli Rússlands og Bandaríkjanna þar sem bandarísku körfuknattleikskonunni, Brittney Griner, var sleppt í staðinn fyrir Victor Bout, alræmdan vopnasmyglara sem afplánaði 25 ára dóm í Bandaríkjunum.
Griner var handtekin á flugvellinum í Moskvu í febrúar á þessu ári eftir að rafrettuhylki með kannabisolíu fannst í farangri hennar. Í ágúst var hún svo dæmd í níu ára fangelsi fyrir smygl og vörslu fíkniefna.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, greindi frá því á Twitter fyrir skömmu að Griner væri örugg í flugvél á leið heim.
Rússar hafa nú einnig sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við fangaskiptin sem sögð eru hafa farið fram á flugvellinum í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Fram kemur í yfirlýsingunni að Rússar hafi staðið í samningaviðræðum um lausn Bout í langan tíma. Í fyrstu hafi bandarísk stjórnvöld neitað að afhendan hann í fangaskiptum, en eftir mikla vinnu hafi það tekist og sé hann nú á leið heim.
Bout var dæmdur í 25 ára fanglesi árið 2012 fyrir selja hryðjuverkasamtökunum al kaída, talíbönum og ýmsum uppreisnarherjum í Afríku vopn.