Fjórir slösuðust alvarlega og fjórir til viðbótar voru fluttir á sjúkrahús eftir troðning á tónleikastað í suðurhluta London.
Viðbragðsaðilar voru kallaðir að staðnum O2 Academy í hverfinu Brixton um hálftíuleytið í gærkvöldi eftir að fregnir bárust um að stór hópur fólks væri að reyna að troðast þangað inn til að komast á tónleika með Asake.
Four people are fighting for their lives after a crush at an Asake concert at the Brixton O2 Academy. Report to follow… pic.twitter.com/wfRS2StULS
— The Voice Newspaper (@TheVoiceNews) December 16, 2022
Þegar á staðinn var komið fundust nokkrir tónleikagestir slasaðir, líkast til af völdum troðningsins.
Rannsókn stendur yfir á því hvað gerðist. Enginn hefur verið handtekinn.