Kornframleiðsla dróst saman um 40 prósent í Úkraínu á þessu ári, vegna innrásar Rússlands.
„Við getum búist við því að uppskeran nái 65 til 66 milljónum tonna fyrir árslok,“ segir Sergí Ivasjenkó, formaður Kornsamtakanna í Úkraínu. Árið 2021 var aftur á móti slegið uppskerumet, þegar ræktunin skilaði 106 milljónum tonna af korni.
„Meginorsökin fyrir þessum samdrætti er stríðið,“ segir Ivasjenkó, og bætir við að margir áhrifaþættir séu leiddir af stríðinu, á borð við skort á eldsneyti og hindranir við sáningu.
Úkraína er almennt stórtæk í útflutningi á korni, en við innrás Rússlands í mars, stöðvaðist útflutningur frá landinu og um 20 milljón tonna af kornafurðum urðu strand á hafnarbökkunum. Við það skertust tekjur úkraínskra bænda svo þeir gátu ekki haldið áfram framleiðslu með sama hætti og höfðu ekki ráð á að kaupa nauðsynlegan áburð.
Í júní var ráðin nokkur bót á þessu með aðkomu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna, þar sem tryggð var örugg sjóleið frá hafnarborg í Úkraínu.
„Yfirráð Rússa á nokktum svæðum, átök á ökrunum og eyðilegging innviða gerði það að verkum að við gátum ekki sáð í jafn stórt svæði og áður.“
Vanalega rækta Úkraínumenn korn á 25 milljón hektara landsvæði, en í ár var einungis fært að rækta 18 til 19 milljón hektara svæði.