Kvenréttindi hafa verið skert enn frekar í Afganistan, eftir að talíbanar bönnuðu konum að starfa fyrir stofnanir sem ekki eru reknar af ríkinu.
BBC greinir frá.
Íslamistastjórnin heldur því fram að konum sem starfa á almennum vinnumarkaði hafi brotið Sharía-lög með því að klæðast ekki höfuðslæðu (hijab).
Bannið var tilkynnt nú, aðeins örfáum dögum eftir að kvenstúdentum var meinað að læra í háskólum landsins – nýjustu vendingu í skertu námsfrelsi eftir að talíbanar tóku við stjórn landsins.