Kennslukonan sem var skotin af sex ára nemanda sínum í grunnskóla í Virginíu í Bandaríkjunum á föstudag, er á batavegi. Hún er engu að síður enn í alvarlegu ástandi.
BBC greinir frá, en kennslukonan heitir Abby Zwerner og er á þrítugsaldri. Batakveðjum hefur rignt yfir hana á samfélagsmiðlum.
Sex ára drengur, nemandi í fyrsta bekk, skaut kennara sinn á föstudaginn, eftir að til ósættis kom milli þeirra. Lögregla hefur gefið það út að ekki hafi verið um slys að ræða heldur ásetning drengsins.
Atvikið átti sér stað í miðri kennslustofu, að bekkjarsystkinum drengsins ásjáandi. Zwerner er sögð hafa öskrað á börnin að koma sér í burtu með hraði, eftir að hún var skotin.
Óljóst er hvernig drengurinn komst yfir skammbyssuna, sem hann notaði til verksins. Einnig er óljóst hvernig hann kom henni óséðri inn í skólann og hvernig honum tókst að beita henni. Í grunnskólanum eru málmleitartæki notuð til þess að skima nemendur daglega, að handahófi.
Skólinn er kenndur við Richneck, en hann er staðsettur í borginni Newport, og í honum eru 550 nemendur á yngsta skólastigi. Í borginni búa um 180 þúsund manns.
Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig um það hverjar hvatir drengsins voru.
„Þetta er myrkur dagur í sögu okkar og þetta er alvarleg áminning fyrir landið allt,“ sagði boegarstjórinn á blaðamannafundi vegna málsins.
Í Virginíu er ekki hægt að ákæra barn með sama hætti og fullorðna einstaklinga, en drengurinn var handtekinn á vettvangi og hefur verið í haldi lögreglu frá því á föstudag.
Drengurinn er jafnframt of ungur til þess að hægt sé að senda hann í svokallað „æskulýðsfangelsi.“ Aftur á móti væri hægt að svipta foreldra hans forræði yfir honum og finna honum nýtt heimili með hjálp velferðarkerfisins.