Að minnsta kosti fimm eru látnir og 27 særðir eftir loftárás Rússa á níu hæða blokk í úkraínsku borginni Dnípró í austurhluta Úkraínu.
Valentyn Reznichenko, ríkisstjóri Dnipropetrovsk, greindi frá þessu í dag á Telegram. Sex börn eru á meðal særðu að sögn hans.
Vladimír Selenskí Úkraínuforseti minntist fórnarlambanna á Twitter í dag og lagði áherslu á að Úkraínumenn berjist fyrir hverju einasta mannslífi og að Rússar verði dregnir til ábyrgðar.
Úkraínumenn fögnuðu nýju ári í dag og er hefðin þar í landi að börn fái sætindi þann 13. janúar. „Rússnesk voðaverk halda áfram yfir hátíðarnar. Á meðan úkraínsk börn njóta sætindanna sem þau fengu í gær gera Rússar loftárásir á íbúðarhúsnæði,“ sagði Olena Zelenska, forsetafrú Úkraínu.
Eternal memory to all whose lives were taken by 🇷🇺 terror! The world must stop evil. Debris clearance in Dnipro continues. All services are working. We're fighting for every person, every life. We'll find everyone involved in terror. Everyone will bear responsibility. Utmost. pic.twitter.com/zG4rIF8nzC
— Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) January 14, 2023