Pólverjar ætla að biðja Þjóðverja um leyfi til þess að senda skriðsdreka af gerðinni Leopard til Úkraínu.
Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, greindi frá þessu.
„Við munum biðja um þetta leyfi,“ sagði hann við blaðamenn, degi eftir að utanríkisráðherra Þýskalands sagði að þarlend stjórnvöld væru tilbúin til að samþykkja slíkan flutning.
Úkraínumenn hafa gagnrýnt hve tvístígandi Vesturveldin hafa verið við að senda þeim vopnabúnað til að styrkja þá gegn rússneska innrásarhernum.