Sendiherra Rússlands í Lettlandi hefur verið gert að yfirgefa landið.
„Sendiherra Rússlands skal vera farinn fyrir 24. febrúar 2023,“ segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Lettlands. Þar segir einnig að sendiherra Lettlands í Moskvu verði kallaður heim.
„Ákvörðunin hefur verið tekin í ljósi þess að Rússland heldur áfram umfangsmiklum árásum gegn Úkraínu sem hófust 24. febrúar 2022, ásamt því að sýna Eistlandi og Litháen samstöðu.“
Greint var frá því fyrr í dag að Eistar ætli að vísa sendiherra Rússlands í höfuðborginni Tallinn úr landi í hefndarskyni eftir að Rússar vísuðu eistneska sendiherranum í Moskvu úr landi.