Stjórnvöld í Eistlandi ætla að vísa sendiherra Rússlands í höfuðborginni Tallinn úr landi í hefndarskyni eftir að Rússar vísuðu eistneska sendiherranum í Moskvu úr landi.
„Við fylgjum þeirri stefnu að samræmis sé gætt í samskiptum við Rússa,“ sagði í tísti frá utanríkisráðuneyti Eistlands.
Þar kom einnig fram að rússneski sendiherrann skuli yfirgefa Eistland á sama tíma og eistneski sendiherrann á að yfirgefa Rússland 7. febrúar. Ákvörðun Rússa var tekin eftir að Eistlendingar fækkuðu starfsfólki sínu í sendiráði Rússlands í Tallinn.