Lögmaður kennarans sem var skotinn af sex ára nemenda sínum tilkynnti í dag að kennarinn hyggist kæra skólastjórnendur vegna málsins.
Abigail Zwerner var skotin í byrjun mánaðarins af nemenda sem tók byssu móður sinnar með í Richneck-barnaskólann í Virginíu-ríki í Bandaríkjunum. Búið var að tilkynna stjórnendum að barnið væri með byssu.
Diane Toscano, lögmaður Zwerner, sagði að stjórnendum hafi borist viðvörun frá kennurum, þar á meðal Zwerner, um að drengurinn gæti verið með byssu og að hann væri ógnandi.
Zwerner tilkynnti stjórnendum um morguninn að drengurinn hafi hótað að berja annað barn.
„En skólastjórnendur gátu ekki hugsað sér að bregðast við,“ sagði Toscano.
Klukkustund síðar sagði annar kennari við stjórnendur að drengurinn gæti haft meðferðis byssu en að hún hafi þó ekki séð vopnið í skólatösku hans. Kennarinn taldi að drengurinn gæti verið með byssuna í vösum sínum er hann var á skólalóðinni.
Þriðji kennarinn tilkynnti að nemandi hafi komið grátandi til hans þar sem drengurinn hafi ógnað nemandanum með byssunni.
Þrátt fyrir allar þessar viðvaranir gerðu stjórnendur ekkert og starfsmanni var bannað að leita á drengnum. Skólastjórnandi sagði að vasar drengsins væru of smáir og að málið mætti bíða til lok dags.
„Hörmung gerðist svo klukkustund síðar er Abby Zwerner var skotinn í Richneck-barnaskólanum fyrir framan skelfingalostin börn,“ sagði Toscano og bætti við að hægt hefði verið að koma í veg fyrir atvikið.
Zwerner var skotinn í brjóstkassann en hún er nú á batavegi heima hjá sér.
Foreldrar drengsins sögðu í yfirlýsingu í síðustu viku að byssan hafi verið á öruggum stað, en drengurinn er sagður hafa náð í hana úr fataskáp móður sinnar.
Þá sögðu þau að hann glímdi við „bráða fötlun“ og fengi sérstaka aðstoð í skólanum. Í því fælist að undir venjulegum kringumstæðum væri fjölskyldumeðlimur með honum í skólanum. Vikan sem Zwerner var skotinn var fyrsta vikan sem enginn var með drengnum í skólanum.
Ólíklegt þykir að drengurinn verði ákærður vegna aldurs en foreldrarnir gætu átt von á að vera ákærðir fyrir að leyfa barni að meðhöndla byssu.