Stjórnvöld í Kína segja það vera miður að ómannað loftfar þeirra hafi óvart flogið inn í bandaríska lofthelgi.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Kína segir að loftbelgurinn sé vissulega kínverskur en sé í eigu óbreyttra borgara og sé notaður í vísindarannsóknum, til dæmis þeim sem snúa að veðurfræði, að því er fram kemur í frétt CBS.
Lofbelgurinn hafi fokið inn í lofthelgi Bandaríkjanna sökum vestanáttar og takmarkaðra leiða til þess að stjórna honum. Loftbelgurinn hafi „vikið verulega frá áætlaðri leið“.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið tilkynnti í gær að fylgst væri með kínverskum njósna-loftbelg sem svifi yfir Bandaríkjunum.