Bandarísk yfirvöld íhuga nú að skjóta niður kínverska loftbelginn, sem svífur í bandarískri lofthelgi, yfir Atlantshafinu.
AP-féttaveitan greinir frá þessu en Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði við blaðamann í dag að stjórnin myndi „sjá um málið“. Loftbelgurinn svífur nú yfir Norður-Karólínu.
Antony Blinken utanríkisráðherra frestaði heimsókn sinni til Peking vegna belgsins og sagði málið vera brot á fullveldisrétti landsins.
Í yfirlýsingu sem kínverska utanríkisráðuneytið sendi frá sér í morgun sagði að formleg heimsókn hafi aldrei verið tilkynnt.
Kínversk yfirvöld greindu frá því í gær að loftbelgurinn væri ómannaður og að hann hafi óvart flogið í bandarísku lofthelgina.
Þá neita Kínverjar að belgurinn sé notaður til njósna, heldur sé hann notaður til veðurrannsókna.