Skelfilegt mannfall hefur orðið í Tyrklandi og Sýrlandi eftir jarðskjálftahrinuna í morgun og tala látinna hækkar stöðugt.
Síðustu fréttir herma að dauðsföll í báðum löndunum séu nú 2.600 manns og líklegt sé að talan muni hækka.
Í Tyrklandi sögðu yfirvöld að þegar væru staðfest dauðsföll 1.651 manna í skjálftanum og tala látinna í Sýrlandi er nú að nálgast þúsundið, eða 968 manns.
Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan hefur lýst yfir sjö daga sorgartímabili í landinu vegna fórnarlamba jarðskjálftanna. „Tyrkneski fáninn verður dreginn í hálfa stöng þar til sól sest sunnudaginn 12. febrúar í öllum opinberum stofnunum, hér í Tyrklandi og tyrkneskum stofnunum erlendis,“ sagði Erdogan í ræðu í dag.