Yfir 1.200 manns eru látnir eftir jarðskjálftann sem gekk yfir Tyrkland og Sýrland snemma í morgun. Eftirskjálfti af stærðinni 7,5 varð í suðausturhluta Tyrklands í morgun, en upphaflegi skjálftinn mældist 7,8 stig.
Erdogan Tyrklandsforseti sagði að 912 manns hefðu farist í Tyrklandi og að 5.300 til viðbótar hefðu slasast.
Að minnsta kosti 560 manns eru látnir og yfir eitt þúsund slasaðir í Sýrlandi eftir skjálftann.
Björgunaraðgerðir eru í fullum gangi í suðurhluta Tyrklands og norðurhluta Sýrlands vegna skjálftans.
#BREAKING: A second earthquake, with a 7.5 magnitude has struck Turkey just moments ago.
— 9News Australia (@9NewsAUS) February 6, 2023
The death toll from the disaster has risen dramatically over the course of the night, with over 1300 people now confirmed dead. #9News pic.twitter.com/5UWAhuuavn