Óþekktur hlutur var rétt í þessu skotinn niður innan lofthelgi Kanada.
Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, greindi frá þessu á twitter.
Lofthelgi Kanada er vöktuð af NORAD-loftvarnarkerfinu, en það byggist á samvinnu Kanda við bandaríska flugherinn.
Trudeau segist sjálfur hafa fyrirskipað að hluturinn yrði skotinn niður. Hann ræddi því næst við Joe Biden, forseta Bandaríkjanna. Kanadíski herinn mun nú safna saman brakinu og rannsaka hlutinn.
Þá þakkar hann loks NORAD-loftvarnarkerfinu fyrir að hafa auga með Norður Ameríku.
I ordered the take down of an unidentified object that violated Canadian airspace. @NORADCommand shot down the object over the Yukon. Canadian and U.S. aircraft were scrambled, and a U.S. F-22 successfully fired at the object.
— Justin Trudeau (@JustinTrudeau) February 11, 2023
Síðast í gær skaut bandarísk orrustuþota niður óþekktan hlut yfir Alaska. Hlutnum hefur verið lýst sem sívölum og silfurgráum, en ekki er ljóst hvað knúði hlutinn áfram.
Grunur leikur á um að hlutirnir séu njósnabelgir frá Kína, en ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum.