Kona sem var svipt breskum ríkisborgararétti sínum eftir að hún hélt til Sýrlands þegar hún var 15 ára til þess giftast meðlimi hryðjuverkasamtakanna Ríki Íslams og ganga til liðs við samtökin, tapaði í dag baráttu sinni fyrir því að fá ákvörðuninni hnekkt.
Samkvæmt úrskurðinum má Shamima Begum, sem núna er 23 ára, ekki snúa aftur til Bretlands en hún hefst við í flóttamannabúðum í norðurhluta Sýrlands.
Hæstiréttur Bretlands úrskurðaði árið 2021 Begum fengi ekki að snúa aftur til Bretlands eftir að hún hafði óskað eftir því að fá að ferðast til landsins og berjast gegn þeirri ákvörðun breskra stjórnvalda að svipta hana ríkisborgararétti.
Begum ákvað að fara með með mál sitt til sérstakrar áfrýjunarnefndar innflytjendamála, en dómstóll hefur nú hafnað áfrýjun hennar, á þeim forsendum að mál hennar heyri ekki undir nefndina.