Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, telur að sagan muni dæma Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og hans þátt í árásinni á bandaríska þinghúsið í janúar árið 2021.
Pence var gestur á hátíðarkvöldverði blaðamanna í Washington DC í Bandaríkjunum í gær.
„Ég hafði engan rétt til að breyta niðurstöðum kosninganna,“ sagði Pence í ræðu sinni.
Einnig sagði hann kærulaus orð Trumps hafa ógnað öryggi fjölskyldu sinnar og öllum annarra í þinghúsinu. „Og ég veit að sagan mun draga Donald Trump til ábyrgðar," sagði Pence.