Telja að ógnin tengist sýrlensku borgarastyrjöldinni

Lögreglan að störfum í Vín. Mynd úr safni.
Lögreglan að störfum í Vín. Mynd úr safni. AFP

Leyniþjón­ust­an í Vín hef­ur nú end­ur­metið aðstæður og seg­ir árás­ina sem talið var að væri í upp­sigl­ingu í borg­inni bein­ast gagn­vart sam­tök­um og fyr­ir­tækj­um sem teng­ist Sýr­landi.

Þessu grein­ir lög­regl­an frá á Twitter.

Ógnin sem lög­regl­an seg­ist hafa orðið vör við kom upp á sama degi og tólf ár voru liðin frá því að sýr­lenska borg­ara­styrj­öld­in hófst þann 15. mars 2011. Í gær hélt lög­regl­an að árás her­skárra íslam­ista væri í und­ir­bún­ingi í borg­inni.

Þá sé lög­regl­an í sam­bandi við þau sem metið sé að gætu verið í hættu. Auk­in ör­ygg­is­gæsla sé enn í borg­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka