Slóvakar hafa ákveðið að láta Úkraínumönnum í té 13 orrustuþotur af tegundinni MiG-29. Forsætisráðherra Slóvakíu greindi frá þessu.
Þjóðin fetar þar með í fótspor Pólverja sem urðu í gær fyrsta þjóð Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur eftir að Rússar hófu hernað sinn gegn nágrannaríkinu fyrir rúmu ári.