Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að handtökuskipunin sem Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn hefur gefið út á hendur Vladimír Pútín Rússlandsforseta sé réttlætanleg.
Pútín og María Lvova-Belova, sem er fulltrúi forsetans varðandi réttindi barna, eru sökuð um stríðsglæpi vegna brottflutnings á úkraínskum börnum til Rússlands.
Biden sagði við blaðamenn á lóð Hvíta hússins að dómstóllinn hefði fært mjög sterk rök fyrir máli sínu, en nefndi að Bandaríkin væru ekki hluti af dómstólnum.
„Það er enginn vafi á því að Rússar eru að fremja stríðsglæpi og voðaverk í Úkraínu og við höfum verið skýr á því að þeir sem eru ábyrgir verða látnir svara til saka,“ sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins.
„Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn er sjálfstæður dómstóll.“
Bretar hafa fagnað ákvörðun dómstólsins og Evrópusambandið sagði að hún væri „bara byrjunin“.
Mannréttindavaktin (e. Human Rights Watch) sagði að um væri að ræða „stóran dag fyrir mörg fórnarlömb“ rússneskra hersveita.
Rússnesk stjórnvöld hafa neitað ásökununum og segja handtökuskipunina „svívirðilega“.