Að minnsta kosti 23 hafa látið lífið vegna kraftmikils hvirfilsbyls og þrumuveðurs sem herjaði á Mississippi í Bandaríkjunum í gærkvöldi.
ABC News greinir að fjölmargir eru slasaðir og þá er fjögurra saknað.
Tugir þúsunda í Mississippi, Alabama og Tennessee eru án rafmagns.
„Ég hef aldrei séð annað eins,“ sagði Brandy Showah, íbúi í Rolling Fork, við CNN. Hún sagði bæinn vera nánast horfinn.