Úkraínsk yfirvöld hafa óskað eftir neyðarfundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í ljósi þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hyggst láta flytja kjarnavopn vestur yfir landamærin til Hvíta-Rússlands.
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Úkraínu sagði að Úkraínumenn geri ráð fyrir „viðeigandi aðgerðum“ Breta, Kínverja, Bandaríkjamanna og Frakka við „kjarnorkukúgun“ rússneskra yfirvalda.
Því óska úkraínsk stjórnvöld eftir neyðarfundi öryggisráðsins til þess að ræða mögulegar aðgerðir.
Oleksí Danilov, ráðherra þjóðaröryggis- og varnarmála í Úkraínu, tísti í morgun að Rússar haldi „Hvíta-Rússlandi í kjarnorkugíslingu“.