Mikhaíló Pódoljak, ráðgjafi Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta, telur að ákvörðun Vladimírs Pútíns Rússlandsforseti að flytja kjarnavopn til Hvíta-Rússlands sýni fram á að Pútín óttist að tapa stríðinu.
Pódoljak tísti að yfirlýsingin sé fyrirsjáanleg og að hún sýni fram á að hræðsluáróður sé hans eina von.
Þá viðurkenni Pútín með ákvörðuninni brot á afvopnunarsamningum.
Úkraínsk yfirvöld hafa óskað eftir neyðarfundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna yfirlýsingar Pútíns.
Putin (RF) is too predictable.
— Михайло Подоляк (@Podolyak_M) March 26, 2023
Making a statement about tactical nuclear weapons in Belarus, he admits that he is afraid of losing & all he can do is scare with tactics...
Second. He once again states his involvement in the crime. Violating the nuclear non-proliferation treaty...