Ungverska þingið hefur samþykkt aðildarumsókn Finnlands í Atlantshafsbandalagið, NATO, eftir margra mánaða tafir.
Mikill meirihluti þingmanna, eða 182 á móti 6, samþykkti aðildina.
Fidesz, hægriflokkur forsætisráðherra Ungverjalands, Victors Orban, er í miklum meirihluta á þinginu.
Tyrkland er núna eina NATO-ríkið sem á eftir að samþykkja aðild Finnlands að bandalaginu. Fullgilding ríkja í NATO krefst einróma samþykkis allra 30 aðildarríkjanna.
Sænska þingið samþykkti í síðustu viku að landið myndi ganga í NATO. Ungverjaland og Tyrkland eiga enn eftir að samþykkja aðild þeirra.
Victor Orban sagði Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á dögunum að Ungverjar muni ekki standa í vegi fyrir inngöngu Svía í Nato. Að sögn Kristersson telur Orban þó ekki þörf á samþykkinu fyrr en Tyrkir geri slíkt hið sama.
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann myndi biðja þingið um að greiða atkvæði um aðild Finnlands að NATO en Erdogan hefur lengi staðið í vegi fyrir því að Finnland fái inngöngu í bandalagið. Hann kveðst enn ekki vera tilbúinn að heimila inngöngu Svíþjóðar.