Donald Trump, fyrrverandi Bandríkjaforseti, segir ákvörðun ákærudómstóls í New York um að ákæra sig fyrir múturgreiðslur til klámleikkonunnar Stormy Daniels vera pólitískar ofsóknir og kosningaafskipti.
Forsetinn gaf út yfirlýsingu fyrir skömmu.
Greint var frá því fyrr í kvöld að dómstólinn hafi ákveðið að ákæra Trump. Það hefur aldrei áður skeð í sögu Bandaríkjanna að fyrrverandi forseti sé ákærður með þessum hætti.
„Ég trúi því að þessar nornaveiðar komi í bakið á Joe Biden,“ segir í yfirlýsingu Trump.