Einn látinn eftir sprengingu í Pétursborg

Frá Pétursborg. Mynd úr safni.
Frá Pétursborg. Mynd úr safni. AFP

Að minnsta kosti einn lést og sextán særðust þegar sprenging varð á kaffihúsi í Pétursborg í Rússlandi rétt í þessu. Enn er óvitað hver kom sprengjunni fyrir.

Rússneskir miðlar greina frá þessu.

Maðurinn sem lést af völdum sprengjunnar var þekktur sem Vladlen Tatarsky en heitir í raun Maxim Fomin. Hann hélt úti einu helsta bloggi Rússlands tileinkað stríðsátökum og var mikill stuðningsmaður innrásar Rússlands í Úkraínu.

„Við munum drepa alla“

Hann komst á sjónarsviðið á síðasta ári eftir að hann birti myndskeið af sér inn í Kreml þar sem hann sagði: „Við munum sigra alla, við munum drepa alla, við munum ræna alla eins og nauðsynlegt er. Eins og okkur sýnist.“

Í rússneskum miðlum er haft eftir innanríkisráðuneyti Rússlands að sprengjan hafi verið falin í styttu sem að Tatarsky hafi verið gefin sem gjöf.

Myndefni sem hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlum sýnir sprenginguna og slasað fólk á götunni. Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndskeið af sprengingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert