Macron kominn til Kína

Emmanuel Macron Frakklandsforseti á sér leið til Kína á morgun …
Emmanuel Macron Frakklandsforseti á sér leið til Kína á morgun ásamt Ursulu von der Leyen. Þau munu fara á fund Xi Jinping þar sem hann mun reyna að sannfæra hann um að stöðva stuðning Kína við Rússland. AFP

Emmanuel Macron Frakklandsforseti kom til Peking höfuðborgar Kína í morgun. Tilgangur heimsóknarinnar er að reyna að fá kínversk stjórnvöld til að hætta að lýsa yfir stuðningi við innrás Rússa í Úkraínu.

„Kína er eina landið í heiminum sem hefur getuna til þess að hafa tafarlaus og róttæk áhrif á átökin, með einum hætti eða öðrum,“ sagði fulltrúi Frakklandsforseta við fjölmiðla fyrir helgi.

Flugvél Frakklandsforseta lenti í Peking í morgun.
Flugvél Frakklandsforseta lenti í Peking í morgun. AFP/Ludovic Marin

Til þess að sannfæra Xi Jinping forseta Kína segist Macron ætla að fara „aðra leið“ en að beita þrasgjörnum talblæ, sem Macron segir gjarnan heyrast frá Bandaríkjamönnum.

Hann vonast til að varðveita og endurreisa viðskiptatengsl Kína við Evrópu ásamt því að standa vörð um hagsmuni Frakklands á Asíu-Kyrrahafssvæðinu en þar er Frakkland með ýmis yfirráðasvæði.

Heimsókn Macrons varir í þrjá daga og verður dagurinn í dag nýttur til að ræða við Frakka búsetta í höfuðborginni. Á morgun mun hann síðan ræða við kínverska embættismenn.

Biden á sama báti

Joe Biden Bandaríkjaforseti og Macron töluðu saman í síma í gær. Þá kváðust þeir sammála um að vilja „flýta fyrir“ lausn á stríðinu í Úkraínu, að því er talsfólk franska ríkisins segir.

Samtalið sýndi „sameiginlegan áhuga Frakklands og Bandaríkjanna á að virkja Kína til að flýta fyrir endalokum stríðsins í Úkraínu og koma á varanlegum friði“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert