Kína „komi vitinu fyrir Rússland“

Emmanuel Macron Frakklandsforseti fundar með embættismönnum Kína í dag. Hann fundar nú með forseta Kína, Xi Jinping, og tjáði honum að hann treysti á að hann „að komi vitinu fyrir Rússland varðandi stríðið í Úkraínu“.

Macron er í þriggja daga opinberri heimsókn í Kína. Jinping tók á móti honum í morgun í Peking, höfuðborg landsins. Macron fór síðast til Kína árið 2019.

Xi Jinping, forseti Kína, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands.
Xi Jinping, forseti Kína, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands. AFP/Ludovic Marin

„Ég veit að ég get treyst á þig til að koma vitinu fyrir Rússland og að koma öllum að samningsborðinu,“ sagði Macron við Jinping.

Jinping sagði náin tengsl Kínverja og Frakka mikilvæg og sagði að heimurinn gangi nú í gegnum „djúpstæðar sögulegar breytingar“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert