Nýr kínverskur sendiherra hefur hafið störf í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.
Wang Yajun er fyrsti embættismaðurinn til þess að koma til landsins frá því að heimsfaraldurinn hófst árið 2020.
Kínverjar eru helstu bandamenn Norður-Kóreumanna og eru rúmlega 90% allra viðskipta Norður-Kóreumanna við Kínverja.
Wang átti að hefja störf árið 2021 en töf varð vegna strangra reglna Norður-Kóreu á landamærunum vegna heimsfaraldursins.
Norður-Kóreumenn hafa fjölgað tilraunum sínum á kjarnorkuvopnum undanfarið. Í kjölfarið hafa Bandaríkjamenn, Japanir og Suður-Kóreumenn strykt hernaðarsamband sitt og staðið að fleiri sameiginlegum heræfingum.