Systur létust í skotárás á Vesturbakkanum

Tvær ísraelskar systur létust og móðir þeirra er alvarlega slösuð …
Tvær ísraelskar systur létust og móðir þeirra er alvarlega slösuð eftir skotárás á Vesturbakkanum í dag. AFP/Jaafar Ashtiyeh

Tvær ísraelskar systur létust og móðir þeirra er alvarlega slösuð eftir skotárás á Vesturbakkanum í dag, nokkrum klukkustundum eftir að Ísraelsmenn skutu eldflaugum á Gasaströndina og Líbanon. 

Ástandið á svæðinu hefur ekki verið eins óstöðugt í langan tíma í kjölfar átaka milli Palestínumanna og ísraelsku lögreglunnar sem gerði áhlaup á al-Aqsa moskuna í Jerúsalem síðustu tvær nætur.

Al-Aqsa mosk­an er í aust­ur­hluta Jerúsalem á Muster­is­hæð. Svæðið er helg­ur staður bæði fyr­ir gyðinga og múslima en þar hef­ur síðustu ára­tugi margsinn­is komið til átaka á milli trú­ar­hóp­anna.

Þá var á fjórða tug eld­flauga skotið frá Líb­anon til Ísra­els í gær. Var það í fyrsta sinn í tæpt ár sem eldflaugum hefur verið skotið frá Líbanon til Ísrael. Ísraelski herinn telur að palestínskir málaliðar hafi staðið að baki árásinni og leita þeirra nú. 

Ísraelski herinn við slysstað.
Ísraelski herinn við slysstað. AFP/Jaafar Ashtiyeh

Skotnar í bíl sínum 

Borgarstjóri Efrat á Vesturbakkanum greindi frá því að konurnar sem létust voru systur og að sú þriðja sem er alvarlega slösuð er móðir þeirra. 

Ísraelski herinn greindi frá því að konurnar voru skotnar er þær óku bifreið sinni í Jórdan-dalnum. 

Enginn hefur enn borið ábyrgð á skotárásinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert