Tvær bresk-ísraelskar systur sem létust í skotárás á Vesturbakkanum hétu Maia og Rina Dee.
Þær voru drepnar seinnipartinn á föstudag er þær óku í Jórdan-dalnum í átt að ísraelsku borginni Tiberias.
Þær voru dætur rabbínans Leo Dee, upphaflega frá ensku höfuðborginni London, sem lýsir dauða þeirra sem „martröð“, að því er BBC greindi frá.
Móðir þeirra, Leah, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi.
British-Israeli sisters killed in West Bank shooting named https://t.co/tqrHFdrOgy
— BBC News (World) (@BBCWorld) April 9, 2023
Maia var tvítug og yngri systir hennar Rina 15 ára. Bíll þeirra fór út af veginum eftir skothríð byssumanna. Faðir stúlknanna hafði ekið á undan þeim í öðrum bíl. Hann heyrði fréttir af árásinni áður en hann áttaði sig á því að um hans eigin fjölskyldu var að ræða.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði að þetta hefði verið hryðjuverkaárás og sendi fjölskyldunni samúðarkveðjur á Twitter.