Móðir systranna einnig látin

Sorgmæddir ættingjar í jarðarför systranna Rina og Maya Dee í …
Sorgmæddir ættingjar í jarðarför systranna Rina og Maya Dee í gær. AFP/Menahem Kahana

Bresk-ísraelsk kona sem særðist í skotárás á Vesturbakkanum á föstudaginn er látin.

Konan var móðir tveggja systra, 20 og 15 ára, sem voru einnig drepnar í skotárásinni.

„Með sorg í hjarta tilkynnum við um andlát Lucy (Leah) Dee, fórnarlambs mannskæðrar árásar í (Jordan) dalnum á föstudaginn,“ sagði í yfirlýsingu frá sjúkrahúsi í borginni Jerúsalem.

Benjam­in Net­anya­hu, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, sagði að þetta hefði verið hryðju­verka­árás og sendi fjöl­skyld­unni samúðarkveðjur á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert