Bandaríska alríkislögreglan hefur tekið höndum leiðtoga lítils spjallhóps, þar sem glás af bandarískum leynigögnum var lekið á síðustu mánuðum.
Dómsmálaráðherrann Merrick Garland greindi frá þessum tíðindum rétt í þessu.
Greint var frá því fyrr í dag að um væri að ræða 21 árs gamlan karlmann sem starfar fyrir njósnadeild þjóðvarðliðsins í Massachusetts.
Maðurinn, Jack Teixeira að nafni, var yfir einkaspjallhópi sem nefndist Thug Shaker Central.
Þar komu saman um 20-30 manns, að mestu ungir karlmenn og táningar, og deildu ást sinni á skotvopnum, rasísku jarmi (e. meme) og tölvuleikjum.