Söngkonan Beyonce og Frans páfi eiga það nú sameiginlegt að hafa bæði misst bláa stimpilinn á Twitter. Blái stimpillinn hefur hingað til verið notaður til þess að auðkenna raunverulega aðganga þekktra notenda við hlið nafns þeirra.
Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nóvember á síðasta ári að brátt tæki við áskriftarþjónusta þar sem fólki væri gert að greiða fyrir stimpilinn bláa, óháð frægð þeirra. Twitter hóf í dag að fjarlægja stimpla þeirra sem ekki eru viljugir til að greiða átta bandaríkjadali eða rúmar 1.000 íslenskar krónur á mánuði.
Stimpillinn kom fyrst til sögunnar árið 2009, eftir að hafnarboltaleikari fór í mál við Twitter vegna falskra aðganga í hans nafni.
Musk hefur kallað áskriftaþjónustuna framför fyrir lýðræðislega umræðu, sem færi völdin í hendur fólksins. Gagnrýnendur ákvörðunarinnar hafa hins vegar lýst yfir áhyggjum um að breytingin muni auka upplýsingaóreiðu, þar sem Twitter Blue notendur fái meðal annars forgang í streymi vefsins.