Samfélagsmiðilinn Twitter auðkenndi falskan aðgang fyrir fyrirtækið Disney um helgina.
BBC greinir frá því að Twitter hafi auðkennt aðganginn @DisneyJuniorUK með gylltum stimpli áður en aðganginum var lokað fyrir óviðeigandi tíst. Raunverulegur aðgangur Disney Junior fékk einnig auðkenningu.
Eigandi aðgangsins tísti „þetta getur ekki verið satt. Er einhver til í að klípa mig eða eitthvað“. Tístið fór um netheima eins og eldur í sinu.
Óvissa hefur ríkt um auðkennda aðganga Twitter eftir að Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nóvember að brátt tæki við áskriftarþjónusta þar sem fólki væri gert að greiða fyrir auðkenninguna.
Um helgina misstu margir frægir einstaklingar bláa stimpilinn sinn, þar á meðal söngkonan Beyonce og Frans páfi. Stimpillinn kom fyrst til sögunnar árið 2009, eftir að hafnarboltaleikari fór í mál við Twitter vegna falskra aðganga í hans nafni.
Nú verður boðið upp á þrjár leiðir í áskriftarþjónustunni. Hver sem er getur greitt átta dollara á mánuði fyrir bláan stimpil, fyrirtæki og samtök geta greitt þúsund dollara á mánuði fyrir gylltan stimpil og þá fá opinberar stofnanir gráan stimpil.