Átök brutust út á milli óeirðarlögreglu og mótmælenda í Frakklandi í dag. Innviðaráðuneytið telur að 782.000 manns hafi mótmælt í Frakklandi í dag, þar af 112.000 manns í höfuðborginni París.
Umdeildu frumvarpi Emmanuels Macrons Frakklandsforseta um að hækka ellilífeyrisaldur í landinu úr 62 árum í 64 ár var tilefni mótmælanna.
Mótmælendur í París köstuðu hlutum í lögreglu og brutu rúður í bönkum og fasteignasölum. Lögreglan beitti þar táragasi og sprautuðu vatni á mótmælendur.
Einn lögreglumaður varð fyrir eldsprengju og brenndist illa á annarri hönd og á andliti.
Lögreglan segist hafa handtekið 46 manns í París það sem af er degi.
Lögreglan beitti táragasi í Toulouse í Suður-Frakklandi og í borginni Nantes í vesturhluta landsins. Kveikt var í fjórum bílum í Lyon.