Hvítrússneski blaðamaðurinn Róman Protasevitsj hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að skipuleggja mótmæli gegn núverandi stjórn ríkisins.
Í maí árið 2021 voru Protasevitsj og kærasta hans, Sofia Sapega, handtekinn í Minsk eftir að farþegaþotunni sem þau voru farþegar í var gert að lenda þar á leið frá Aþenu til Vilníus.
Hvítrússneskir fjölmiðlar greina frá fangelsisdóminum en saksóknarar fóru fram á að Protasevitsj yrði dæmdur í tíu ára fangelsi.
Hann hefur verið í stofufangelsi síðan í júní árið 2021. Er réttarhöldin hófust yfir honum í febrúar birtu hvítrússneskir fjölmiðlar myndskeið af Protasevitsj játa sök sína.
Í viðtali við blaðamann sumarið 2021 sagði hvítrússneski mannréttindafrömuðurinn og stjórnmálakonan, Svetlana Tsíkanovskaja, að eina hlutverk blaðamannsins væri að lifa af. Í mars á þessu ári var Tsíkanovskaja dæmd í 15 ára fangelsi.
Talið er að um 1.500 pólitískir fangar séu fangelsaðir í Hvíta-Rússlandi.