Skutu niður sinn eigin dróna

Í fyrstu var talið að dróninn væri rússneskur.
Í fyrstu var talið að dróninn væri rússneskur. AFP

Úkraínski flugherinn skaut niður sinn eigin dróna fyrir ofan Kænugarð síðdegis í dag. Dróninn er sagður hafa orðið stjórnlaus.

Skothvellir heyrðust í Kænugarði í dag þegar flugherinn skaut í átt að dróna sem var á flugi yfir borginni. Íbúar borgarinnar gerðu í fyrstu ráð fyrir því að um rússneskan dróna væri að ræða, en Rússar gerðu drónaárás á borgina í fyrrinótt. Flugherinn tilkynnti hins vegar síðdegis að dróninn sem skotinn hafi verið niður í dag hafi tilheyrt sér.

Í tilkynningu frá flughernum segir að um kl. 20 að staðartíma (17 á Íslandi) hafi dróni af tegundinni Bayraktar TB2 orðið stjórnlaus þegar hann var á flugi yfir borginni. Dróninn var því skotinn niður í kjölfarið.

Eitt brot úr drónanum féll til jarðar og leiddi þá af sér eldsvoða í verslunarmiðstöð. Bálið dreifði sér um rúma 50 fermetra, að sögn Vítalís Klitsjkó, borgarstjóra Kænugarðs. Engan sakaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert