Tóku morðingja mæðgnanna af lífi

Frá jarðarför systranna Rinu og Mayu Dee. Móðir þeirra lést …
Frá jarðarför systranna Rinu og Mayu Dee. Móðir þeirra lést einnig. AFP/Menahem Kahana

Öryggissveitir Ísraelsmanna skutu þrjá Palestínumenn til bana fyrir að myrða bresk-ísraelska konu og dætur hennar tvær á Vesturbakkanum fyrir tæplega mánuði síðan. 

Tveir menn voru grunaðir um morðin, og þá var þriðji maðurinn sakaður um aðild. Í yfirlýsingu Shin Bet öryggissveitanna sagði að mennirnir þrír hefðu verið skotnir til bana í borginni Nablus á Vesturbakkanum. 

Hermenn fundu tvo M-16 riffla og einn AK-47 riffil í íbúð þar sem mennirnir höfðu aðsetur. 

Hamas-samtökin, sem eru við stjórn á Gasa-ströndinni, greindu frá því að mennirnir þrír hafi verið liðsmenn í samtökunum. Samtökin sögðu að um „morð á hetjum“ væri að ræða.

Benjam­in Net­anya­hu, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, fagnaði að málinu væri nú lokið. 

Leo Dee, eiginmaður og faðir kvennanna, sagði það vera létti að mennirnir væru látnir. Þá óskaði hann eftir að ræða við fjölskyldur mannanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert