Rússneski skáldsagnahöfundurinn Zakhar Prilepin særðist eftir sprengjuárás sem var gerð í Nizhny Novgorod-héraði í Rússlandi í dag, að því er kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneyti Rússlands.
Að minnsta kosti einn fórst í árásinni.
Prilepin er hliðhollur rússneskum stjórnvöldum og innrásinni í Úkraínu. Hann gekk til liðs við aðskilnaðarsinna vegna Krímskaga árið 2014 og barðist við hlið þeirra í átökunum.
Árásin í dag var gerð á ökutæki sem Prilepin var í ásamt fjölskyldu sinni. Hann særðist á fæti en er ekki í lífshættu. Rússar segja að Úkraína beri ábyrgð á verknaðinum og líta á hann sem hryðjuverk.
Fleiri árásir hafa verið gerðar í Rússlandi síðustu vikur og hafa þær flestar verið gerðar fjarri vígstöðvum. Í apríl lést Vladlen Tatarsky sem hélt úti einu helsta bloggi Rússlands tileinkað stríðsátökum eftir sprengjuárás á kaffihús í Pétursborg. Tatarsky var mikill stuðningsmaður innrásar Rússlands í Úkraínu.