Fjöldi fólks fagnaði þegar Karl III. Bretakonungur og Kamilla drottning veifuðu frá svölum Buckingham-hallar í tilefni krýningarinnar í Westminster Abbey í morgun.
Með þeim á svölunum voru Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans Katrín prinsessa ásamt börnum þeirra þremur.
Krýningin var sú fyrsta í Bretlandi í 70 ár. Um 2.300 gestir voru viðstaddir athöfnina, þar á meðal erlendir þjóðarleiðtogar og konungborið fólk víðs vegar að úr heiminum.