Sænsk-íranskur andófsmaður að nafni Habib Farjollah Chaab var tekinn af lífi í Íran í morgun eftir að hafa verið fundinn sekur um hryðjuverk.
Stjórnarmenn í Svíþjóð hafa fordæmt aftökuna og um leið allar dauðarefsingar gegn þeim sem eru með tvöfaldan ríkisborgararétt.
Íran viðurkennir ekki tvöfaldan ríkisborgararétt en Chaab hefur verið í haldi í Íran síðan í október 2020 eftir að hann hvarf í heimsókn til Tyrklands. Hann var dæmdur til dauða 6. desember í fyrra fyrir að vera í forystu uppreisnarhópsins Harakat al-Nidal.
Tobias Billstrom, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lýsti því yfir í morgun að gjörðir Írans væru ómannúðlegar. Chaab var sakaður um að hafa skipulagt fjölda árása í Khuzestan-héraði frá árinu 2005.
Í desember 2020 voru ellefu manns handteknir í Tyrklandi grunaðir um að hafa rænt Chaab og sett í sendiferðabíl áður en honum var ekið að landamærum Írans. Myndskeið birtist í fréttum í Íran þar sem Chaab sagðist bera ábyrgð á árás á skrúðgöngu hersins í borginni Ahvaz árið 2018 þar sem 25 létust og 250 særðust.