Saka Bandaríkin um aðild að árásinni

Rússneski skáldsagnahöfundurinn Zakhar Prilepin særðist í árásinni og aðstoðarmaður hans …
Rússneski skáldsagnahöfundurinn Zakhar Prilepin særðist í árásinni og aðstoðarmaður hans lést. Samsett mynd

Rússar saka Bandaríkin um aðild að sprengjuárás sem varð í Rússlandi í dag með þeim afleiðingum að rússneski skáldsagnahöfundurinn Zakhar Prilepin særðist. Aðstoðarmaður Prilepin fórst í árásinni.

Prilepin er hliðhollur rússneskum stjórnvöldum og innrásinni í Úkraínu. Hann særðist á fæti og er ekki í lífshættu.

Rúusar sögðu fyrr í dag að Úkraínumenn bæru ábyrgð á verknaðinum sem líta ætti á sem hryðjuverk. Árásin varð í Nizhny Novgorod-héraði, um 400 kílómetra austur af höfuðborginni Moskvu.

Utanríkisráðuneyti Rússlands sagði síðar að ábyrgðin lægi ekki aðeins hjá Úkraínu, heldur einnig hjá vestrænum bandamönnum þjóðarinnar, fyrst og fremst Bandaríkjunum.

Þögn Bandaríkjamanna ólíðandi

Ráðuneytið gagnrýndi skort á fordæmingu árásarinnar hjá Bandaríkjunum og sagði að þögnin væri ólíðandi.

Mikhaíló Pódoljak, aðstoðarmaður Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta, gaf aftur á móti í skyn að árásin hefði orðið vegna átaka Rússa innanlands.

Rannsakendur birtu í dag mynd af bíl, sem var gjöreyðilagður, og sögðu að rithöfundurinn hefði verið fluttur á sjúkrahús. Maður að nafni Alexander Permyakov hefur verið handtekinn og er grunaður um verknaðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert