Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að hafa ráðist á borgina Bakmút með fosfórsprengjum.
Í drónamyndum sem úkraínski herinn birti virðist sem hvítu fosfóri rigni yfir borgina eftir árás Rússa.
Vopn með hvítu fosfóri eru ekki bönnuð en litið er á notkun þeirra í íbúðabyggð sem stríðsglæpi, að því er BBC greinir frá.
Þau dreifa út eldi á skjótan hátt sem mjög erfitt er að slökkva.
Rússar hafa áður verið sakaðir um notkun þessara vopna.