Ferðamaður sem dvaldi á hóteli í Lhasa, höfuðborg Tíbets, varð var við mikinn óþef á hótelherberginu sínu. Hann óskaði eftir því að fá að skipta um herbergi en tveim dögum síðar komst í ljós að lyktin stafaði frá líki sem var undir rúminu.
Fréttastofa CNN greinir frá þessu.
Ferðamaðurinn innritaði sig á hótelið þann 20. apríl og eyddi hálfum degi inni á herberginu þar sem hann velti vöngum yfir því hvaðan lyktin kæmi. Fyrst hélt hann að lyktin kæmi mögulega frá bakaríi fyrir neðan herbergið eða jafnvel frá sínum eigin tám. Ástæðan fyrir fnyknum reyndist mun alvarlegri.
Tveim dögum eftir að ferðamaðurinn skipti um herbergi var hann kallaður aftur inn í fyrra herbergið af lögregluþjónum. Þá komst hann að því að lyktin væri af líki sem hafði verið undir rúminu í þó nokkurn tíma.
Lögreglan tilkynnti ferðamanninum að hann lægi ekki undir grun um verknaðinn þar sem líkið hafði verið undir rúminu í nokkra daga fyrir komu hans á hótelið.